Hrmf
Anna B kom til landsins í seinustu viku og er það búið að vera hið mesta ævintýri að hafa hana hérna hjá mér.
Vá, ég er ekki búin að blogga síðan fyrir páska frí!
Ég fór sem sagt ekki vestur eins og ætlaði að gera, því miður! Ég var bara hérna heima í kotinu í Borgarnesi og lét mig leiðast allsvakalega. Þó svo að móðir mín vill halda því fram að ég hélt eitt svakalegasta partýi sem uppi hefur verið og að allt var morandi í bjórdósum og sígarettustubbum.
Sem er ekki satt. Það voru mjög fáir. Og ég þreif eftir fólkið. Mamma var bara mega paranojuð og sá fyrir sér brot í gluggunum og rispur á veggjum. Sem er heldur ekki satt:)
En nóg um liðna tíð! Eins og ég hef sagt áður ætla ég að halda mér í nútímanum, please join me!!
Núna á helginni er söngkeppnin á Akureyri. Sem verður eflaust mega fjör! Ég hlakka alveg ótrúlega mikið til að fara þangað ! Áfram gakk, allir að halda þangað :)
Svo eru alveg 1,60 m stór plaggöt af mér útum allan bæ! mjög svo sniðugt, naaat!!
Svo var það þarna bæklingurinn sem kom út á mánudaginn, maður orðin celeb bara 8-). En Já, þá fannst mér og fólkinu sem var að gera blaðið alveg ótrúlega fyndið að setja símanúmerið mitt í bæklinginn, eða þeim!! og já mér fannst það auðvitað bráðskemmtilegt. Og viti menn þá er til fólk á Íslandi sem er reyndar ekki jafn fyndið og við í blaðinu en jú jú fyndið! Þau tóku sig til og sendu mér sms og hringdu. Það var líka ótrúega fyndið.
En mér til mikillar skemmtunar er ég eiginlega ekkert stressuð að koma fram á sviðinu! Þótt merkilegt sé, ég er mjög sviðshrædd manneskja. Þetta kemur allt:) slowly slowly!
En jæja, helgin mín var bara gleði og gaman. Þar sem að Anna B fallega og yndislega kom.. Á laugardagskvöldið fórum við til Reykjavíkur og áttum þar góða stund með henni Maríu Valgeirs, vorum heima hjá henni og fengum okkur pizzu og hvítvínssopa.
Ég nenni ekki að blogga meira, jeg er svo meget tr"ö"t!
Aloah
Hooola!
Ég er alveg hræðilega léleg í þessu verki.
Jæja.. Alveg ótrúlega margt búið að gerast þennan hvað mánuð sem ég er ekki búin að blogga! Ég er búin að fara tvisvar vestur, Dagný flutt til Spánar og ég er byrjuð að vinna í Hyrnunni.
Ég held að allir ættu að öfunda mig! Skólinn minn er alveg sjúklega skemmtilegur! Útaf minni vist hér hef ég ákveðið hvað ég ætla að gera í framtíðinni. Það er ótrúlega skemmtilegt djobb:)
Það kemur bara ekkert annað til greina hjá mér í þessum heimi nema að dansa, leika og syngja. Þetta er það sem ég ætla að gera!
Eftir að ég horfði á yndislegu Kræ Babý þá varð ég dolfallin. Sólheimaglittið var á sínum stað og mér fannst ég vera komin heim.
Er byrjuð að æfa söng og píanó hérna í Nesinu.. Haha.. nesið.. En já og ég stefni að því að æfa leiklist og dans í borginni bráðlega. I looove it:)
Just dance dance dance.
Þessa helgi gerði ég ekki shiiiiiiiit. Sem var alveg ótrúlega notalegt!
Þurfti reyndar að vinna á föstudaginn frá hálf tólf til 9 um kvöldið! og var alveg dauð. Eeeen mér til mikillar gleði kom hópur frá Ísafirði sem var að fara á Samfés.. Það gladdi mig alveg fáranlega mikið! Svo gott að sjá kunnug andlit í Borgó:) Þótt að það hafi allt verið á milljón og þau voru á hraðferð náði ég að knúsa hana Helgu Lind sætu mína. Það var gaman.
Jæja!
Páskar að koma. Hvað á maður að gera? Ég ætla að borða á mig gat:) Með henni Sollu sætu:D
Jii hvað lífið er skemmtilegt. Ég var að horfa á skemmtilegt myndband á youtue, hann Barak Houssein Obama vinur minn hélt alveg magnaða ræðu. Ræðan heitir á youtube: Yes We Can. Væri ekki alveg geðveikt að hafa það mikið vald, vera það klár og skynsamur að geta haldið svona magnaðar ræður. Geta samið svona magnaða texta og hafa svona mikil áhrhif á heiminn?
Þar sem ég var að tala um tilgang minn í lífinu held ég það það sé hluti af því. Ég held að það sé ástæða fyrir því að ég sé svona ótrúlega dramatísk og ótrúlega væmin!
Verð samt aðeins að vera meiri hörkutól, en það er seinni tíma vandamál.
Ég hlakka svo til að fá sumar! Þótt mér finnst ég nýkomin úr sumarfríu! Mér fannst ég hafa bara verið í löngu sumarleyfi þegar ég var útí í Greece. Þannig að ég er aðeins á undan ykkur hinum.. djók 8-)
Árshátíð MB er á fimmtudaginn. Rosa stuð og ofsa gaman! Páll óskar verður með ball, auðvitað! Og það verður meeega heitt. Ætla að vera ótrúlega fín og mikil skvísa :)
En svo ég segi nú eitthvað merkilegt...
Það býr morðingi og krimmi á heimilinu mínu hérna í Borgarbraut 28. Kötturinn minn er algjör glæpon! Hann kemur með litla sæta fugla inná heimlið og leggur þá í einelti, étur mýs og kemur með þær hálfétnar inn til að klára nokkrum mín seinna. Svo er hann alveg ótrúlega dekraður! fær ótrúlega góðan harðfisk í kvöldmat os svona.. Kemur alltaf inn til mín á kvöldin og vill sofa í mínu rúmi. En hann er samt sætur.
En því miður veit ég bara ekkert hvað hann heitir! ég kalla hann bara alltaf kisa.
En ég ætla að lúlla núna þar sem ég er búin að vera alveg ótrúlega dugleg í dag!! Þótt ég segi nú sjálf frá.
Góða nótt og látið ykkur líða vel :)
Dont worry about a thing,
cause every little thing gonna be all right.
Rise up this mornin,
Smiled with the risin sun,
Three little birds
Pitch by my doorstep
Singin sweet songs
Of melodies pure and true,
Sayin, (this is my message to you-ou-ou:)![]()
Ji hvað maður er myndó! (það er effeect á þessu!( it's a fake))![]()
Ég er víst með fegurðarblett! haha 8-)![]()
Rauði varaliturinn kominn!
Anna B, þessar myndir eru ætlaðar þér og pápa! Fyrir ykkur hin set ég bráðum myndir af einhverjum
öðrum en mér:D
Ást og friður
Borat Ja
Zodiac Sign - the Potato
Religion: I follow the Hawk
Sexual Orientation: I am not loolee loolee
Body Type: 2 arms, 2 legs, 112 teeth and chram thick like tube of Pringles
Family - I single - my wife is dead (I did not kill her).
I have 3 sons Bilak [12], Biram [12], Hooeylewis [13]] and I have 17 grandchildrens. Hooeylewis is my most favourite son, Bilak is my least favourite son.
This woman Bilak's wife. I do not know her name

I have brother. His name is Bilo. He once have a demon that live in his head so we open his head and place a dry fish inside to eat the demon, but the demon become angry and make Bilo a retard. He is sex crazy! All day long in his cage he look on porno!

Nokkrar myndir af kappanum:





AAAhhh þessi maður er svo mikill sniiiiiillingur!!
He gives me tha ha ha's

En útí eitthva meira spennandi!
Valentínusardagurinn í vændum.

Elegant og flott! Bow wow! finnst þetta svo mega eitthvað.
Litlu gellurnar mínar!
Síðan þar sem sumarið er handan við hornið ætla ég að skella mynd af geðveiku bikiníi sem ég ætla að fá mér:)

Retro Hot;)
En jæja, nóg um þetta!
Það verður brjááálað stuð á árshátíð MÍ með honum Páli Óskari!
Ég er byrjuð að æfa körfubolta gott fólk! og gengur það ágætlega.
Allt brjálað að gera í skólanum og íþróttum!
Ætlaði ekki að hafa þetta mikið lengra. bless í bili:)

My love where are you now?
Eitt sem ég fatta ekki að afhverju fólk er með einhvern rasisma?
Hvað í ósköpunum skiptir hópum svona mikið upp?
Ég haaaaaaata ekkert meira en þegar Íslendingar segja: Já týpiskt að þetta hafi verið úlendingur! eða: Þeir eru alltaf að ræna eða nauðga stelpum þessir Litháar.
Man að ég sá einhverntíman á b2.is einhverja svaka umræðu um að þessir "helvítis" útlendingar ættu að fara heim, því að þeir voru alltaf að nauðga konunum "okkar" og berja karlana.
Eru þeir eitthvað verri en Íslendingar sem nauðga konunum "sínum" og berja karlana í stöppu?
Afhverju er ekki talað meira um þá og hvað þeir eru mikil fífl? Þoli ekki svona!
Svo þegar einvher segir, Já þessir helvítis Tælendingar eru útum allt og Pólverjarnir eru að taka yfir Íslandi. Hvaða kjaftæði er það!
Pæliði í því hvað þau lifa góðu lífi hérna á Íslandi miðað við úti! Móðir mín var að segja mér að hún hitti pólskan grunnskóla kennara á námskeiði í Írlandi, mánaðrlaun hennar voru 8000 kr á mánuði.
Hvað er það?
litla systir mín fær meira í vasapening en það!! og flestir aðrið íslenskir krakkar. Koma hingað með fjölskydur sínar til að lifa góðu lífi, en eina sem er að að fólk er alltaf með einhvern dónaskap. OK, ég ætla nú ekki að alhæfa, ég veit alveg um fullt af útlendingum sem búa hérna á Íslandi sem finna ekki fyrir þessu.
En því miður veit ég um fleiri sem lenda í þessu.
Síðan þegar Íslendingar fara til Tælands er hneigt fyrir þeim! Ég veit ekki um eina manneskju sem er frá Íslandi sem mundi gera hið sama, nema kannski Sindir og Gísli

Og ef ég er að tala um þetta ætla ég að fara útí eitt svipað. Nasistar!!! Það eru ennþá fólk sem eru Nasistar. Hvað er það?
Ég var að leika mér á youtube og rakst inná skemmtilegan þátt frá henni Tyra Banks. Hún var mjög hugrökk og bauð til sín nasista fjölskyldu. Pabbinn og Mamman algjörlega búin að heilaþvo greyið börnin sín, segja að gyðingjar séu ógeðslekt fólk og að þau eiga ekki skilið að lifa og þau stela bara frá þeim og eru vondar manneskjur, það var lítil sex ára stelpa að segja þetta!!
Síðan var strákurinn þeirra sem var ekki mikið eldri en stelpan að segja að ef að einhver svartur strákur kemur og ætlar að leika við sig og vini hans, þá er hann bara beðinn um að fara og ekkert eitthvað blíðlega! Þau vilja ekki sjá svertingja eða "öðruvísi" fólk!
Kallinn var ekkert smá dónalegur við hana Tyru pæju og sagðu að hún ætti bara að fara til Afríku og stofna einhvern kvennmans svertingja hóp. Síðan kom mynd af hjónunum vera að kyssast og fyrir aftan þau var haka kross bókstaflega on fire! rómó mynd eða hvað??
Svona hugsunarháttur fer svo ótrúlega mikið í taugarnar á mér. Þetta fólk er svo brenglað að það er ekki fyndið.
Þetta er allstaðar í heiminum, sem er svo leiðinlegt. Maður flokkar fólk svo mikið eftir því hvernig það lítur út. Ég sá líka annað myndband frá henni Tyru vinkonu um það, það var kona frá Pakistan minnir mig sem var með svona "sjal" yfir hausnum, Tyra spurði fólkið í salnum hvað þau mundu halda ef þau mundu sjá hana og það var svört kona sem sagði að hún mundi halda að hún væri hryðjuverkamaður! Pælið í því hvað það er sorglegt! Einhver kona bara að krúsa um bæinn og síðan er hún stoppuð fyrir grun um hryðjuverk því hún lítur eitthvað svo þannig út! leiðinlegt mál maður..
Eeeen útí annað!
Afhverju í ósköðunum er ég svona fáranlega væmin?!!! þetta er bara hræðilegt. Ég held að ég þjáist af einhverri veiki.
Ég var að horfa á Dr. Phil í dag, ég grét! Síðan var ég að horfa á extreme makeover home edition og það var kona sem ættleiddi börn og kom þeim fyrir, en hún átti heima í alveg hræðilegu húsi. Þeir í þættinum gerðu alveg svakalega flott hús og fínerí fyrir þau, ég grét! Afhverju grét ég yfir því?
Ok ég var ekki alveg hágrátandi en ég táraðist! skil þetta ekki. Ég græt þegar ég sé þroskaheft fólk! guðmóðir mín í grikklandi er líkamlega þroskaheft, hvernig get ég verið alltaf með tárin í augunum þegar ég hitti hana? Ég vorkenni þeim bara svo mikið.
Er ekki eitthvað námskeið sem ég get ferið á?
Helga lind eru game í að taka mið í hörkutóls námskeið? haha, mig og Önnu Birtu?;)
Held að við þurfum báðar mikið á því að halda.
Hverjir koma til RVK um helgina?:)
Á morgun er ég að fara á ball á Akranesi með henni frænku minni, ætla að vera algjör pæja.
Fer á morgun með henni Dagný að versla mér sæta háhælaða skó:) fítfíú!
Á morgun er ég líka að fara að spila og syngja í skólanum, því við erum að opna nýja húsnæðið. Mogginn, rúv og menntamálaráðherra og læti! Vonandi borða ég ekki yfir mig og fæ flogakast fyrir framan píanóið, hate when that happens!
Sindir kemur um helgina!! ekkert lítið skrítið.
Ég kem vestur 14 feb! vavavoom!! það verður mega stuð.
btw þá gengur uber vel hérna í Borgarnesi=)
Ætla ekki að hafa þessa ritgerð lengri..
Ást og mikil, mikil gleði frá mér!
Besos

Allt að gerast.
Fór með skólanum til Reykjavíkur í dag og við horfðum á Gettu Betur liðið okkar tapa illa á móti MH..
Síðan er ég að fara til Akureyrar um helgina með skólanum í skíða/bretta ferð! Sem verður án efa óóóótrúlega gaman:) Langt síðan ég fór á bretti! Get heldur ekki beðið eftir að smella kossi á hana Sólveigu mína! og eyða einhverjum tíma með þeirrir stúlku..
Félagslífið í skólanum er bara mjög virkt!
Eeeen já. Ég er líka duglega að fara til Reykjavíkur að hitta Dagnýog Auju.. Sem er mjög hentugt!
Sakna þín Anna Birta! Og ykkar líka stelpur! ef þið eigið frí helgi bráðum komiði þá í heimsókn til Kötu frænku:)
Og Helga Lind, ég þarf þig hingað núna takk. Ég var ekkert smá lengi að átta mig á því hvað þú varst að tala um, en ég fattaði þegar ég las í þriðja skiptið! Hlakka til að fá pakkan frá þér! komdu þér í smá tilfinningarskap og við hittumst á miðri leið.
Síðan ætla ég að hafa sorgarljóð í lokin. Annað skiptið sem ég set þetta ljóð hingað. Besos!
Stop all the clocks, cut off the telephone,
Prevent the dog from barking with a juicy bone,
Silence the pianos and with muffled drum
Bring out the coffin, let the mourners come.
Let aeroplanes circle moaning overhead
Scribbling on the sky the message He is Dead.
Put crepe bows round the white necks of the public doves,
Let the traffic policemen wear black cotton gloves.
He was my North, my South, my East and West,
My working week and my Sunday rest,
My noon, my midnight, my talk, my song;
I thought that love would last forever: I was wrong.
The stars are not wanted now; put out every one,
Pack up the moon and dismantle the sun,
Pour away the ocean and sweep up the woods;
For nothing now can ever come to any good.
Góðan Daginn!!
Já, ég er flutt í Borgarnes. Alltaf að flytja! Aðal ástæðan er útaf mömmu auðvitað og síðan er skólinn alveg mega góður og splunkunýr. Síðan skil ég vinina eftir á Ísó og Halldór. Eeen Dagný og Auja eru í rvk, síðan koma vinirnir hér bráðum.
Síðustu daga hef ég ekkert gert nema hreyft mig og borðað hollan mat! Nema þegar Dagný kom í heimsókn í sunnudaginn:) mér til mikillar gleði.
Nýtt ár komið! Tíminn líður aðeins of hratt. Ég held samt að 2008 verði frábært ár!
Allir að fara til útlanda og flytja. Ísafjörður verður bráðum bara tómur, nema um hátíðarnar:) Fyrirgefðu Dóri, en þetta held ég:D
Það er ekkert að gera þarna fyrir fólk sem eru ekki í skóla eða fullorðið fólk í vinnu. Þess vegna eru allir að fara til útlanda í framhaldsnám.
Fólk! þegar þið eruð að fara til rvk hringið þá í mig og ég skal hafa til pönnsur og kakó í Borgarnesi eftir erfitt ferðalag:)
Mér finnst svoo gaman að elda! Nenni því eiginlega aldrei, en þegar ég fer í það er ég alveg on fire! Kannski ég ætti að opna veitingastað hérna í Borgarnesi.. Maður veit aldrei

Veit einhver hvenar Árshátíð NMÍ er? Væri alveg rosalega gaman að kíkja vestur þá.
Sindri bróðir er að koma heim 3 feb. Mér finnst eins og hann hafi farið fyrir svona tvem vikum.
Við mamma ætlum víst að sækja hann! Síðan fer hann vestur stutt eftir það


Mér finnst þetta look svo heitt!

Mother May I !
Rosalega er þessi manneskja falleg!

long, luscious lashes,
rich red lips,
racy scarlet nails,
fresh skin,
well-shaped brows
Va-Va-Voom!
Þessi blogg færsla var svona létt fréttaskot!
Ætla að vera duglegri að blogg þar sem ég er farin aftur:)
Set inn myndir bráðum Anna Birta mín!
Bloggedí Blogg!
Hvar á ég að byrja??
Ok, leið mín lá til Barcelona 21 nóvember. Ég eyddi þessum dýrmæta tíma með fallegum stúlkum! Fyrsta kvöldið mitt í ókunnugri borg fór hún Birgitta á date en við Helga Lind eyddum kvöldinu með tónlist og hvítvíni. Eins og við viljum halda þá deildum við sálum okkar það kvöld.
Við gerðum margt skemmtilegt og hittum hressar týpur. "You da hooooe"! haha góðir tímar.
En þessi ferð einkenndist að mestu leyti af ofnbökuðu brauði, Dreamgirls tónlist, stuttum pilsum og fallegum íslenskum sveitastúlkum.
Æðisleg ferð í alla staði!
Næsti og síðasti áfangastaður var síðan Keflavíkur flugvöllur mánudaginn 26 nóvember.
Hún Guðrún Auður æðislega sótti mig AFTUR um hálfþrjú á mánudagsnóttu. Enda skulda ég henni annað af mínum tvem nýrum!
Ég sagði líka við hana að ef hún gerði einhverntíman einhvern skandal og þurfti manneskju til að hjálpa sér að færa lík eða saga það niður mætti hún alltaf hringja í mig:) átt inni hjá mér gull!
En ég eyddi nóttinni með henni. Hún keyrði mig síðan í kringluna þar sem ég hitti hana móður mína og hún tók við af Auju.
Við keyrðum saman í Borgarnes og sá ég húsið hennar mömmu í fyrsta skipti, leyst mér líka alveg rosalega vel á það. Ég horfði á Pride And Prejudice, sem er alveg rosalega góð. Ég þurfti að horfa á hana útaf ensku tímanum sem ég mætti í seinna í vikunni.
En það var mikið dekrað við mig þar og reyndi mamma algjörlega að selja mér Borgarnes.
Ég, Auja og Arnar Friðrik keyrðum síðan saman vestur fimmtudagskvöldið.
Greyið Arnar, við Auja létum eins og algjör fífl og dönsuðum við harðasta rapp og mesta dópista teknó sem til er! Við sungum líka með lögum eins og "It's Raining Men", "Enough Is Enough" og "We Are The Champions".
Hann Dóri vakti eftir mér og sváfum við vært þá nótt.
Daginn eftir vakti Auja mig og við drifum okkur í hádegisspinning, sem var rosalega hressandi! Enda átti ég erfitt með að halda mér uppi þegar ég var búin. En áður en ég fór með Auju kíktu Anna, Lísa og Ingibjörg á mig og komu mér á óvart þegar ég var að klæða mig. Það var alveg fáranlega skemmtilegt! gaman að fá smá surprise

En um kvöldið var 1 des ballið og maturinn! Fólk var afar skrautlegt og skemmtilegt. Ótrúlega gaman að hitta alla!
Laugardagskvöldið mitt fór í það að vera í smá eldhús/stelpupartýi hjá Auju, fámennt en mjög góðmennt!
En vegir okkar lágu að dyrum Edinborgar. Vorum frekar rólegar.. Síðan fór ég frekar snemma heim að sofa.
Maraþonfótbolti!
Who is who??
Þegar Dóri var í heimsókn hjá mér í Aþenu:)
Anna Birta Fallega kona!
Ég í miðbæ Aþenu að versla..
Ég og Dóri úti að borða hjá Akropolis..
Túristarnir við!
Já og síðan er ég orðin dökkhærð!
Skemmtilegt að segja frá því að hún Helga Lind gerði þetta klukkutíma áður en ég fór á flugvöllinn heim til íslands

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra!
Just remember that Daddy KC likes you
Leaving On A Jet Plane
Þetta er það nýjasta nýtt í bransanum! hver segir svo að ég fylgist ekki með:)
Ég þjáist af leti!
Ég er að fara að hoppa uppí vél eftir 19 klukkutíma og ég er ekki búin að pakka, nei ég er ekki byrjuð að pakka! frekar sit ég hér að hlusta á tónlist og dagdreyma.
Ég var að skoða æðislega skemmtilegar myndir á netinu af morrahófinu árið 2005. Vá þetta var geeeðveikt sumar! Óendanlega mikill lúxus að vera í morranum.
Ekki lét að vera fegurðardrottning í ruslapoka.
Andrea ofur heit!
Ísak líka!
Góðir tíma:)
Anna beauty.
VÍNBÚÐIN.. alveg ofur svöl!með magan útí loftið haha.
Vá hvað þetta var gaman!
hahaha!
Gellur
ég tók þetta af síðunni hennar Albertu:)
Hvað um það!
Eins og fólk sem þekkir mig veit hvað ég fíla ekki svona r'n'b, hip hop og rap dæmi.. Nema auðvitað maður er að dansa við það! en ég var að hlusta á lag með honum Akon sem heitir sorry, blame it on me. Mér finnst það bara ágætt lag! Bara ef allir gætu gert þetta.. Samið lag til að biðjast afsökunar. Lagið mitt væri nú orðin söngleikur!!
Síðasta kvöldið mitt í aþenu! Ætti maður að fara út á hörku djamm og drekka þangað til að maður getur ekki andað, eða vera heima og pakka?
Þar sem ég drekk ekki og fer ekki út á skemmtistaði ætla ég auðvitað að vera dugleg og pakka.
Hlakka mega mikið til að fara til spánar! og gera skemmtilega hluti. Hlakka líka exetreme mega mikið til að fara heim.
Ég ætla að klára að pakka öllu því sem ég á!! úff, ég hlakka sko ekki til.
Helga, ég hringi í þig í kvöld til að fá götuheiti.
Ciao
Supercalifragilisticexpialidocious
Þar sem ég er alltaf á síðustu stundu í að gera allt ætlaði ég að fara að panta flug í kvöld, en það var fullbókað frá barcelona til íslands annað kvöld.. og ekki aftur flogið fyrr en á föstudaginn... þannig aaað ég fer á miðvikudaginn til Barcelona og verð í tvo daga og fer um kvöldið á föstudeginum:) Ég er alveg ótrúlega heppin með það að Helga og Birgitta eru þar! ég fæ gistingu hjá þeim og skemmtun á meða ég er í ókunnugri borg!
Við ætlum auðvitað að drekka og dópa allan tímann.. Og það endar með því að ég missi af vélinni og bý á götum Barcelona.. kemst aldrei heim og mun vinna á götunni!
Djók.
Er ekki hægt að fara á húmornámskeið? Ef einhver veit um slík, give me a call..
En ég er bara að fíflast í henni móður minni.. Ég skal passa mig mamma. En ef einhver býður mér nammi þá fer ég víst í bílinn þeirra!!!
Já.. It's the suger talking.
Ég hlakka voða til að fara til Spánar.. Hef aldrei verið í öðru sólarlandi en í Grikklandi.
Ég hlakka til að fá skyr.is og kristal +.. Og auðvitað íslenskt nammi og pylsu! mmm
En hinsvegar á ég eftir að sakna souvlaki!!! besti skyndibitamatur í alheimi.
lítur ekki svo vel út.. en þetta er himnasending frá englum guðs! djók
Þetta er gott.
Anna Birta fallega kona er alveg snaargeðveik.. ég elska hana samt meira en allt!
Hún talar alveg hræðilega mikið uppúr svefni og getur hún gert mig alveg rosalega hrædda!
Um daginn labbaði ég inní herbergi til okkar um nóttina, hún var alveg steinsofani. Ég kveikti ljósin og um leið settist hún upp og hrópaði: OBBA
Sem er svona grískt áheyrsluorð. Eins og þegar maður segi: Hey, gættu þín, Flott hjá þér eða glæsilegt.. maður getur notað þetta oft! En þetta er oftast notað þegar er verið að dansa gríska dansa eða brjóta diska eða kveikja í gólfum. Já Grikkir eru alveg snargeðveikir líka. En það var alveg rosalega skemmtilegt að heyra þetta um nóttina frá henni, þar sem hún notar aldrei þetta orð.
Ég gæti sagt margar ótrúlega fyndnar sögur frá önnu b þegar hún talar uppúr svefni!
Einu sinni settist hún upp um miðja nótt og ropaði.. Ég hef aldrei heyrt hana ropa þegar hún er vakandi!! hvað þá sofandi! en hún var þarna í myrkrinu og sagði síðan: Σιγνομη κυρια, σιγνομη! þýðing: Afsakið herra, afsakið.
Það var fyndið og skemmtilegt. Hún hefur nú lært mannasiði konan:)
Ég var að skoða gömlu síðuna hans Dóra, Dúllaheim.. Þvílík snilld! ótrúlega fyndið að lesa línur dagsins.. vá hvað þetta voru góðir tímar :D mikið var maður eitthvað fáfróður! allir á gelgjuskeiðinu, hormónarnir í hámarki hjá unga fólkinu.
Tala ég ekki eins og versti útlendingur?
Á morgun er hittingur hjá öllu fólkinu sem var í cinemaclub hjá Nikitasi. Við ætlum að hittast á kaffistað sem vinur hans á.. Dagný, kaffistaðurinn sem við fórum á þegar við vorum búnar að borða morgunmat á Hilton hótelinu. Drukkum hreinan og ljúffengan appelsínu saga. En hvað með það?
Ég er bara farin útí eitthvað rugl..
ég ætla að koma með nokkrar skemmtilegar nínur frá síðunni hans Dóra.
Línu dagsins 15. apríl sagði Óli, en hún hljóðar svo:
Halldór – treystu mér! Ég hef séð þau mörg fjósin um ævina og ósnobbuðustu beljur myndu ekki láta sjá sig hérna inni!
...þarna var hann að tala um herbergið mitt... :@Línu dagsins 10. apríl sagði Smári, en hún hljóðar svo:
(Það voru allir að dást að hversu flott Mieke í Eurotrip væri flott. Öllum fannst hún geðveik nema Smára, honum fannst hún ekkert spes. Allir fóru þá að sjálfsögðu að kalla hann homma eða steingeldan munk. Þá svaraði Smári með þessum gullmola): Hvað er þetta?! Kannski fíla ég þær bara feitar!
...þvílík snilld! hahaha… =DLínu dagsins 3. apríl sagði Smári, en hún hljóðar svo:
(Við vorum í náttúrufræðitíma þegar Jóna Ben sagði okkur frá veitingahúsi í Þýskalandi þar sem er algjört myrkur, enginn sér neitt og öllum líður eins og þeir séu blindir, líka kokkunum og þjónunum.) Smári: En bíddu er þá bara algjör þögn? Emil: Gaur, af hverju ætti að vera þögn?? Smári: Blindir..? Bíddu.. heyra þeir?
...held það ætti að tékka á kollinum á þessum kalli… ! ;)Línu dagsins 29. nóvember sagði Hemmi, en hún hljóðar svo:
Líttu á þetta sem merki að ofan...
...þessu svaraði hann þegar ég sagði honum að pizzan mín smellpassaði svo á diskinn sem ég var með að það væri ekki minnsti blettur laus fyrir kokteilsósuna... :DLínu dagsins 29. október sagði Smári, en hún hljóðar svo:
Frekar sleiki ég rassgatið á gömlum manni með ónýtan hringvöðva og borðar ekkert nema sveskjur í öll mál en að fara í skólann á morgun!
...hahahahahah... ;DLínu dagsins 9. júlí sagði Gunni, en hún hljóðar svo:
Þetta er bardagi sem ég get ekki sigrað !
...þetta sagði hann þegar við vorum að slást um lakkrísbombu... :PLínu dagsins 9. febrúar sagði Gummi stæ, en hún hljóðar svo:
Af hverju samokareglan?! Hvað myndiru gera ef þú værir fastur í bílnum þínum í aftakaveðri uppá fjalli, björgungarsveitarmenn kæmu og spyrðu þig: ,,Hver er samokareglan??’’
...haha þvílíkt gullkorn...! :DÉg kveð að sinni!
Kaaty
So lonely is the loneliness
Ég er ekki búin að panta miða því að ég finn ekki vegabréfið mitt! Engar áhyggjur mamma, Anna Birta veit um það..
En á morgun geng ég í það!
Á mánudagin mun ég fljúga frá Aþenu um hadegið til Barcelona. Ég mun vera þar þangað til seint sama kvöld. Helga Lind og Birgitta munu halda mér félagskap á meðan ég verð þar! sem verður eflaust mjög skemmtilegt..
Ég lendi á Íslandi um tvö leytið. Ég verð hjá mömmu í einhverja daga þar sem ég hef mikla löngun í smá muma loove! Ég er ekki búin að ákveða hvenar ég kem vestur, en það verður ekki langt þangað til.
Ég trúi ekki að ég sé að fara til Íslands.
Ég lenti í Aþenu 12 júlí í sumar með henni Dagnýju vinkonu. Algjörlega tilbúin í að takast á við heiminn. Við gerðum margt skemmtilegt, vorum mjög latar!! Ferðin einkenndist mikið af dansi, saganaki og tequila! Það var gaman... lentum sem betur fer í engu slæmu, að mig minnir!
Hún yfirgaf mig í lok ágúst.. Þegar hún fór var ekki skemmtilegt hjá mér!! (mér finnst ótrúlega gaman að vorkenna sjálfri mér)
Ég horfði á sjónvarpið allan daginn, svaf til þrjú og hékk í tölvunni að tala við Dóra og að vera spennt og feit að bíða eftir honum og Önnu Birtu:D
8 ágúst komu þau víst! Anna Birta í 9unda himni með að vera komin heim til sín. Ég og Dóri vorum eins og hvert annað ástfangið og latt unglingapar. Vorum í sundlauginni, átum scramled eggs og muffins í morgunmat sem Anna Birta útbjó fyrir okkur, þessi elska!!
Nikitas, alltaf jafn yndislegur! kom alltaf með fallegar konur í sundlaugina okkar sem voru alveg ofur flottar! Hann var samt alltaf að kvarta yfir ljótu bikiníbuxunum sem við Anna Birta mundum fara í.. nema þegar hann sá gullna g-strengs bikiníið mitt, þá var hann sko stoltur af frænku sinni!
Ömurlegt fyrir mig þegar við vorum uppi hjá honum í cinema club og hann var að segja vinum og vinkonum frá fallega gullna bikiníinu mínu sem ég keypti (í gríni) í kynlífsbúð!
Það átti bara að vera notað á nektarströnd á Mykonos, haha:D
Síðan fór Dóri. Var frekar erfitt að vita það að við værum ekkert að fara að hittast næstu 3 mánuði! Eeeen sem betur hafði ég Önnu Birtu. Já við fórum alltaf upp til Nikitasar og borðuðum snakkið hans, kökurnar og nammið.. Sem betur fer elskaði hann okkur. En við fórum samt í ræktina!
Síðan um miðjan september byrjaði ég í skólanum. Ótrúlega spennt!! ég var alveg ofur kurteis, með mína ljósu lokka og tönuðu fætur í stuttum kjólum og sandölum!
Ég notaði tíman sem ég hafði í að gera ekki neitt til að hugsa um lífið og tilverunna.
Ég hugsaði mikið um tilgang lífsins (útrskýrir væmni mín í fyrrum bloggum) og hvað það er yndislegt! Ég var á góðu róli.. Þar til hann Nikitas fór, það var alveg rosalega erfitt.. Ég er bara feginn að við vorum svona góðir vinir!
Þegar ég lít til baka yfir dvöl mína hér, finnst mér eins og ég sé ekki búin að gera neitt.
Jú ok, ég fór á æðislegan homma bar um daginn með henni Önnu Birtu og kærastanum hennar og vini hans. Maðurinn sem á staði var 78 ára gammal maður, en hann og ástmaður hans til 25 ára eiga staðinn saman. Þeir eru mestu yndi sem ég veit um. Þegar við förum þangað koma þeir alltaf með einhverja fallega litla rétti sem þeir eru búnir að útbúa fyrir okkur. Staðurinn er frekar lítill þannig að það eru ekki mikið af fólki á honum. Síðast eignuðumst við Anna Birta lesbískan aðdáanda!
Á eftir að sakna sjónvarpsins, besta vini mínum! Pabba og Önnu Birtu og prakkarastrikin sem ég og pabbi gerðum af okkur! Og auðvitað ofur feik konurnar sem ganga um göturnar.. já og líka hóranna.
Njótið lífsins fólk..
tvær nætur eftir fyrir mig.. úff þetta er erfitt!
kossar,
Katerina Inga
